Kæru vinir

Sæl og blessuð kæru vinirWink

Hér allt gott að frétta. Skólinn á fullu þessa vikuna og svo er auðvitað bara rúm vika í árshátíðina þannig að það er sko í nógu að snúast. Yfirmaðurinn farinn í feðraorlof og þá er ég víst aðal manneskjan á meðanTongue out Svosem ekkert nýtt! En það er metaðsókn á árshátíðina að ég held bara! Sem er frábært, enda er alltaf markmiðið að fá sem flesta og gera betur heldur en í fyrra. Þetta verður glæsilegt, skreytingarnefndin er á fullu að skipuleggja og svo verður farið að versla í næstu viku....bara gamanLaughing

Við Þórir fórum í bústað á Flúðum um síðustu helgi ásamt Geira og Sólveigu. Við höfðum það bara notalegt saman, túristuðumst aðeins og síðan kíktum við Þórir auðvitað á fjölskyldumeðlimi.

Við erum að fara í mæðraskoðun á morgun. Það er bara mjög spennandi, Guðrún kom með mér síðast af því að ég þorði ekki ein í fyrsta skiptið og Tóti komst ekki þá, en hann kemur með í þetta skiptiðLaughing


Spakmæli dagsins
Með réttu viðhorfi getur þú breytt neikvæðri streitu í jákvæða
-Hans Selye-

LaTeR

11. mars 2009 klukkan 19:06
Tinna Hallgrímsdóttir
Binný skrifar ...
gott að allt gengur vel, kossar og knúsar ;*
11. mars 2009 klukkan 22:06
Jóna Ósk skrifar ...
Ég á bráðum afmæli ;)
12. mars 2009 klukkan 00:07
Tinna skrifar ...
Takk fyrir það Binný:)

Skonsa, það fer ekkert fram hjá mér sko;)
12. mars 2009 klukkan 11:28
Heiða skrifar ...
Hæhæ langaði bara að kvitta fyrir komunni :)
13. mars 2009 klukkan 13:46
Binni skrifar ...
Ertu ekki alltaf aðalmanneskjan á svæðinu, no matter what? Mér finnst það allavega.
18. mars 2009 klukkan 02:31

Skrifa athugasemd

MYND APR MÁN: Ein gömul og góð->

Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Tinna Hallgrímsdóttir
  • Netfang: tinna@vogar.is
  • Staður: Er Vogalingur...en bý í Innri Njarðvík
  • Atvinna: Nemandi í Kennó og vinn í félagsmiðstöð....en þessa dagana sinni ég nú bara móður hlutverkinu
  • Hjúskaparstaða: Spoken for:p
  • Um mig: Sko...ég er alveg súber hress skvíza sem elskar að elska gæjann sinn og vini sína. Finnst alltaf jafn gaman að djamma með vinum mínum og dansa með góðum gellum;) Ég eignaðist yndislega stelpu í júlí á þessu ári og hún er sko bara fallegust !!
  • Annað: VILJI ER ALLT SEM ÞARF Einar Ben

Könnun

Hver er heitust?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins