26ágúst

Já það er sko allt að gerast!!

Sælar elskurnar mínar....

Já ég er aftur komin yfir á gömlu síðuna mína. Mér líkar miklu betur við hanaGlottandi Og það var nú víst bara umtalað útum allan bæ hvað þessi síða væri miklu skemmtilegri, þannig að ég ákvað bara að láta slag standa.

Það er nóg að gera í vinnunni. Nenni nú ekkert að tala um það svosem...

Skólinn byrjar í næstu viku, staðlota alla vikuna, ásamt því að ég er að fara á starfsdag með stjórn Samfés á Egilsstöðum í sömu vikunni. Alltaf þarf nú allt að gerast á sama tímaÓákveðinn Svo er mar auðvitað að flytja. Fáum íbúðina 1. september, þannig það er sko nóg að gera!

Ég og Jóna fórum í gær í Perluna og Lífsstíl, vorum svona að skoða aðstæður á hvorum stað fyrir sig. Sem endaði með því að við keyptum ekki kort, því að gellurnar í afgreiðslunni voru frekar grillaðar.......hvað er málið með það að vera með svona ungar stelpur í afgreiðslunum??? Ætli það endi ekki bara með því að við fáum okkur kort í Massa hahahahUllandi

Svo eru Sandgerðisdagar um helgina, og ég og Skonsan ætlum víst að skella okkur á ball í Sandgerði með Á Móti Sól. Alveg kominn tími á smá uppliftingu, er þaggiHlæjandi

En jæja kveð ykkur í bili

Ykkar einlæga, Tinna


LaTeR
26. ágúst 2008 klukkan 22:58
Tinna Hallgrímsdóttir
20 athugasemdir
28febrúar

Aaaaalveg að koma helgi...

ÞAÐ ER FIMMTUDAGUR og Tinnan er sko alveg að digga það!!

Á morgun verður dagurinn tekinn snemma, ég og Inga erum að fara í förðun fyrir kvöldið. Við erum nefnilega að fara á árshátíðBrosandi Jibbí Jibbí ég hlakka sko BARA til!! Það verður fordrykkur kl 18 held ég og síðan verður farið með rútu í Hveragerði á Hótel Örk. Síða um nóttina verður farið til baka og er ég alveg viss um að ég og Inga mín eigum eftir að enda í miðbæ RVKGlottandi 

Ég fór í ljós í gær....og ég er sko BLEIK!! Brúni liturinn kemur vonandi í ljós fyrir árshátíðinaHlæjandi
Ég skrapp líka í RVK í gær til þess að kaupa mér svarta spariskó, ég fann þá auðvitað hjá Kamillu frænku, síðan þurfti ég endilega sjá svo flottan kjól að ég varð að kaupa hannSkömmustulegur Þannig að ég verð í honum á morgun.

Síðan á laugardaginn er verið að plana djamm með Mickey Finn, vitiði ekki hver það erGlottandi 
HeheUllandi

En það er aaaalveg að koma helgarfrí!!!!!!!!

Svo kemur ástin mín heim á laugardaginnHlæjandi 

Þannig að það er allt að gerast.....

En þangað til næst

LaTeR

28. febrúar 2008 klukkan 13:01
Tinna Hallgrímsdóttir
19 athugasemdir
25febrúar

Óskarinn 2008

Sælir kæru vinir

Óskarsverðlaunin voru haldin í nótt, ég var búin að bíða með mikilli eftirvæntingu í nokkrar vikur. Ég var nú fyrst drullu stressuð að það yrði engin hátíð þetta árið vegna verkfallsins. En því var plöggað í tæka tíð. Inga Margrét horfði með mér á hátíðina, við horfðum síðast saman á Óskarsverðlaunin árið 1994 þegar Forrest Gump var valin besta myndin....viljiði pæla það eru 14 ár síðan!!

En hér er svona smá listi yfir helstu verðlauna hafana:

Aukaleikari-Javier Bardem NO COUNRTY FOR OLD MEN
Auka leikkona-Tilda Swinton  MICHAEL CLAYTON
Besti leikari-Daniel Day-Lewis THERE WILL BE BLOOD
Besta leikkona-Marion Cotillard LA VIE EN ROSE
Leikstjóri-Cohen bræður NO COUNTRY FOR OLD MEN
Besta myndin-NO COUNTRY FOR OLD MEN

Ég er bara mjög sátt við þessi verðlaun í ár....ekkert svona sem kom verulega á óvart.


En yfir í aðra sálma.....
Á föstudagskvöldið var ég að vinna til 23:00, eftir það brunaði ég í Rvk í teiti til hennar Ingu, þar var fullt af einhverju sálfræði pakki úr skólanum hennar, rosa fjörGlottandi
Við kíktum síðan niður í bæ og dönsuðum eins og brjálæðingar!! Samt var eiginlega skemmtilegasti partur kvöldsins þegar við vorum á leiðinni heim....hehe Binný var sko að meika þaðUllandi

Á laugardaginn fór ég í afmæli til Mæju minnar, skvísan bara orðin 16 ára!! Ótrúlegt alveg. Síðan um kvöldið fór ég í Hafnarfjörðinn til Hrafns & Siggu og horfði þar á Eurovisjón ásamt því að Binni þunni mætti á svæðið. Alltaf gaman þegar við hittumstHlæjandi
Síðan fór ég heim og pikkaði Jónu upp á Ránni, dróg hana með mér heim þar sem við fórum að sötra, síðan sótti Jóhann okkur og skutlaði mér, Jónu, Hönnu Báru og Beggu á Trix, þar voru Dj Joey D og Óli Geir alveg sjóðheitir eins og venjulega!Glottandi
ÉG SKEMMTI MÉR SVO VEL.....OG ÉG DANSAÐI EINS OG FENGI BORGAÐ FYRIR ÞAÐGlottandi Síðan hringdi ég í Davíð minn og hann skutlaði mér og Jónu heim.
Ég var langt því frá að vera jafn hress daginn eftir og lá í rúmi til kl 19:00 eða bara alveg þangað til að ég fór í sunnudagsmatinn til mömmu og pabba.

Um kvöldið fóru síðan ég og Inga Margrét í bíó á 27 dresses, já eitthvað svona görlí fyrir okkur því við vorum einar á konudaginn.....

Núna er ég í vinnunni og er ekki búin að sofa nema í 3 tíma því að ég fór að sofa kl 07:30!! Og ég er að vinna til 22:30 í kvöld..........GANGI MÉR VEL!!!

Þangað til næst...

LaTeR
 

 
25. febrúar 2008 klukkan 12:45
Tinna Hallgrímsdóttir
9 athugasemdir
20febrúar

HOME ALONE

Ekki myndin samt...

Kjéllan er home alone.....Tóti minn er farinn til DK í tæpar tvær vikur. Hann er að fara að skoða einhvern lýðheilsuskóla og síðan er hann að fara að þjálfa fótboltaliðið FG Arhus, eða hvað sem það nú heitirUllandi Þetta er semsagt á vegum skólans. Hann kemur ekki heim fyrr en 1. mars, þannig að ég er bara ein í kotinu þangað til.

Ég er bara farin að hlakka nokkuð til helgarinnar, margt skemmtilegt framundan, bíóferðir, threesome hittingur, teiti hjá Ingu og síðast en ekki síst ÓSKARS VERÐLAUNIN...já ég veit ég er svoddans nördGlottandi


Núna sit ég bara fyrir framan tv og er að horfa á OC, fékk seríu 3 lánaða hjá Mæju. Og ég á eflaust eftir að liggja yfir því á meðan Tóti er í burtuHlæjandi

Þangað til næst

LaTeR

20. febrúar 2008 klukkan 23:59
Tinna Hallgrímsdóttir
4 athugasemdir
14febrúar

I need some massage!

Já ég held ég láti nudda mig á eftir áður en ég fer að sofa!
Axlirnar mínar emja af sársauka......þær vilja nudd.

Það er bara BRJÁLAÐ að gera ef svo má að orði komast. Ég er á fullu að undirbúa Vina & Paraball sem verður í féló annað kvöld. Krakkarnir og ég fóru í RVK í morgun að versla fyrir ballið og svo vorum við að skreyta í allt kvöld, held að þetta verði alveg geggjaðHlæjandi

Síðan eru mamma og pabbi að koma heim í fyrramálið, minz fer uppá völl að sækja þau....jeiii ég hlakka svo tilHlæjandi

Síðan á laugardaginn ætlar Geiri að að bjóða mér og Tóta út að borða á Caruso....jammý, það verður örugglega geggjað.

Síðan ætla ég bara að nýta helgina í að RELAX, TAKE IT EASY, svona eins og Mika syngurUllandi

Þangað til næst....

LaTeR


14. febrúar 2008 klukkan 23:44
Tinna Hallgrímsdóttir
11 athugasemdir
08febrúar

Sæmileg færsla

Jæja kæru lesendur góðir.......

Já það er langt síðan síðast! Ég viðurkenni það sko alvegUllandi Þannig hér mun koma eitt lengsta blogg sem þið hafið augum litið.....ja það verður allavega langtGlottandi 

Í þar síðustu viku fór ég og kíkti á Ingu mína í Rvk, ég tók hana með mér í Flash á laugarveginum því hún stóð sig svo vel síðast að hjálpa mér að finna árshátíðarkjól að ég ákvað að nýta hennar gríðarlegu kjólahæfileika í að finna annan. Og viti menn hún fann einn rosalegan!! Ég var alveg viss um að ég myndi sko ekki finna neinn jafn flottan og í fyrra.....en hún Inga mín stendur fyrir sínu sko!! Muchos gracias  mi amiga! Og Vá hvað mig hlakkar til að fara í hannHlæjandi Síðan tókum við einn skver í Kringluna til að gá hvort ég fyndi skó, jájá fundum þá eins og skot.
En mér finnst samt svo sorglegt að hafa bara farið einu sinni í hinn kjólinn, sem ég keypti í fyrra, ég er bara alltaf að bíða eftir því að einhver gifti sig, þá get ég kannski mætt í honum, þetta er svona hint á ykkur ógiftu vini mínaUllandi 
En Inga mín er búin að bjóða mér á árshátíðina sína, þannig að það er kannski spurning að ég smelli mér í kjólinn frá því í fyrraHlæjandi Inga....við verðum alveg ELD heitarGlottandi

Á laugardeginum fór ég í teiti hjá Ingu, síðan skelltum við okkur ásamt góðra vina hópi á Broadway á Benny Bennassi, það var helvíti gaman sko.

Ég er svona að reyna að muna allt það helsta sem ég hef verið að gera af mér síðustu daga.....

Já ég sagði ykkur síðast að ég væri ekki að standa mig í skólanum, var bara engan vegin að kveikja á því að það væri byrjað nýtt misseri, eeeen ég er sko heldur betur búin að taka mig á núna og það gengur bara rosa velHlæjandi

Ég er búin að vera veik alla vikuna......er næstum því búin að sofa í heila öld (svona eins og þyrnirós) bara ég, náttötin, sængin og sjónvarpið.

Svo er Einar bróðir fyrir sunnan, alltaf gott og gaman að fá hann aðeins heim.

Pabbi minn varð 60 ára í gær!! Hann er fagnar því ásamt sinni heitelskuðu og vinahjónum í Dóminíska Lýðveldinu, þau hafa það víst rosa gott þar. Kannski að ég baki köku handa pabba mínum þegar hann kemur heimHlæjandi

Mig langar líka að segja ykkur að ég þoli ekki þetta veður!! Þið eruð eflaust flest sammála því!!

Ég verð bara róleg um helgina, ætla að hafa það kósý bara og reyna að ná þessari drullu úr mér. Ég og Jóna erum að fara í skírnarveislu hjá Helgu (The Boss) á morgun. Síðan ætlum ég og Þórir að fara í bíó og út að borða.....ja ef að veður leyfirÓákveðinn

Ég tel þetta verða ágætis pistil í bili af ævintýrum Tinnu

Þangað til næst

LaTeR
08. febrúar 2008 klukkan 16:16
Tinna Hallgrímsdóttir
11 athugasemdir
28janúar

Múnday

Ég er.....

ÞREYTT....ÞREYTTARI...ÞREYTTUST!!

Mánudagar eru alltaf eitthvað svo insane að það hálfa væri HELLINGUR!! En...það birtir til.......því að á morgun er þriðjudagurUllandi

Ég er líka byrjuð að læra alveg rosa dugleg, ég byrjaði í gær og var langt fram eftir nóttu. Ég komst að því í gær að það á að skila ritgerð í félagsfræði á föstudaginn þannig að ég ákvað að byrja á því og nú er sko allt farið af staðHlæjandi 

Svo er það Benny Benassi á laugardaginn....VÚHÚGlottandi  Hverjir eru með?




Sjæsen hvað ég ætla að dansa af mér fæturnaUllandi

See Ya On The DanceFloorHlæjandi

LaTeR



28. janúar 2008 klukkan 23:49
Tinna Hallgrímsdóttir
28 athugasemdir
22janúar

Hverjum lýkist þú...

Hey farið inn á þessa síðu...

http://www.myheritage.com/FP/Company/tryFaceRecognition.php

Þar seturu  inn mynd af þér og þá geturu  séð hvaða fræga einstakling  þú líkist.

Eins og þið vitið þá líktist ég nottla hinni gullfallegu Scarlett Johanson heheHlæjandi



Hehe sjáiði mar...nákvæmlega eins hehehGlottandi

Þið verðið að tékka á þessu og segja mér svo hverjum þið líkist....Hlæjandi
22. janúar 2008 klukkan 19:16
Tinna Hallgrímsdóttir
7 athugasemdir
21janúar

Sorry....but I don´t do humans.......

Svo sagði maðurinn.....eða bara gamli góði Ace VenturaHlæjandi  Hehe ég kíkti á Jónu í dag og við horfðum á Ace Ventura, sú mynd er alltaf jafn mikil snilld mar!!

Ég bara elska að horfa á svona myndir. Ég og Inga Margrét vorum með videókvöld á föstudaginn, við horfðum á byrjunaratriðið í The Pest svona 5 sinnum og hlógum okkur máttlausar......síðan horfðum við á eina spúkí, The Hitcher og svo á The Mask...já þetta var snilldar videókvöldGlottandi

Á laugardaginn horfði ég á leikinn með pabba, það er svo fyndið að fylgjast með kallinum horfa á strákana okkar, hann er svo tens að það hálfa væri nóg sko! EN VÁ hvað ég væri til í eitt stykki Loga Geirs.....HEEEEEITUR!!!!Hlæjandi 
Svo um kvöldið fór ég til Hönnu Báru....og okkur langaði soldið að kíkja á djammið, þannig að við fórum að vesenast í því að pössun fyrir Alexander, það rétt hafiðist mar....síðan hringdum við í Jónu, náðum að plata hana með.  Síðan kíktum við í Kef, fórum fyrst á hápunktin og síðan á Yello....það var bara fínt sko....tókum léttan rassahristing á ettaUllandi 

Ég vaknaði rosa fersk í dag, engin þynnka, tek heldur ekki þátt í solleiðs vitleysuUllandi Fór til Jónu að horfa á Ace Ventura, síðan var  dinner hjá möm og pab. Fór svo á rúntinn með Tóta, og kíkti síðan á Ingu Margréti. Síðan fór ég á videóleigu, veit nú ekki hvað er langt síðan ég gerði það síðast! Leigði Goldfnger 007 og Shooter með Mark HOT-PANTS WhalbergGlottandi  Og er að horfa á Goldmember núna með öðru auganu....

Þangað til næst

LaTeR
21. janúar 2008 klukkan 00:03
Tinna Hallgrímsdóttir
7 athugasemdir
16janúar

Sæll !!

Eigum við að ræða þetta veður eitthvað????


Það er sko blindbilur dauðans úti....minz er bara ennþá í vinnunni....held bara að ég komist ekkert heim á næstunni!! Það eru víst árekstrar á brautinni hægri vinnstriHissa

Ég bauð Ingu Margréti á rúntinn í gær....við spjölluðum endalaust saman, ætluðum aldrei að hættaUllandi   Enda ákváðum við að hafa videókvöld, þá ætlum við að horfa á The Mask & The Pest, sem voru aðal myndirnar hjá okkur á yngri árunum.....síðan eigum við eflaust eftir að spjalla endalust meir.....því alltaf þegar við hittumst þá fáum við bara munnræpuHlæjandi 

Skólinn er byrjaður aftur og ég ætla sko bara að segja ykkur sannleikann að ég hef ekki opnað bókHissa 
Sæll............verð sko að fara að gera eitthvað í því!!!!

Jæja ég má ekkert vera að þessari vitleysu....Ullandi

LaTeR
16. janúar 2008 klukkan 18:05
Tinna Hallgrímsdóttir
10 athugasemdir

MYND APR MÁN: Ein gömul og góð->

Auglýsing

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Tinna Hallgrímsdóttir
  • Netfang: tinna@vogar.is
  • Staður: Er Vogalingur...en bý í Innri Njarðvík
  • Atvinna: Nemandi í Kennó og vinn í félagsmiðstöð....en þessa dagana sinni ég nú bara móður hlutverkinu
  • Hjúskaparstaða: Spoken for:p
  • Um mig: Sko...ég er alveg súber hress skvíza sem elskar að elska gæjann sinn og vini sína. Finnst alltaf jafn gaman að djamma með vinum mínum og dansa með góðum gellum;) Ég eignaðist yndislega stelpu í júlí á þessu ári og hún er sko bara fallegust !!
  • Annað: VILJI ER ALLT SEM ÞARF Einar Ben

Könnun

Hver er heitust?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins